Reddaðu deginum sjálf(ur)
21.12.2006 14:44:01 / illug

Bíða og bíða og bíða og bíða.

Hér sit ég og get ekki annað. Maður er bara í því að athuga hvort einhverjar einkunnir séu komnar inn, en ekkert gerist. Þetta fer nú að verða pínu þreytt. Og ég beið og beið og beið og beið ooooooggggg beið og beið og beið og beið. HE, þetta fer nú bara eins og það fer. Þeir sem eru í klásus eru náttúrulega búnir að fá sitt, en það er eðlilegt að það komi á undan okkur. Samt, það má nú eitthvað fara að skýrast í þessu.

Annars bíður maður nú bara eftir jólunum, halda upp á fæðingu frelsarans og allt það,,, eða bara pakkarnir, hehe. Er það ekki aðalmálið í dag, hvað fær maður og hvað fær maður ekki, er það ekki spurning fyrir heilsufélagsfræðinga að skoða þessi mál.

Ofurdúfan kveður....


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.12.2006 12:54:04 / illug

Jól jól jól

Já ef það hefur farið fram hjá einhverjum, þá eru að koma jól og brjálæðið er byrjað. Í augnablikinu er ég staddur í Reykjavík þar sem klikkunin er hvað mest. Öll bílastæði full en samt reynir fólk, frekjast og fer í fílu (rétti jólaandinn). Sveitamaðurinn er nú ekki alveg að skilja þetta allt saman og er hinn rólegasti, eða reynir það, en það getur verið svolítið pirrandi að láta flauta á sig ef maður er ekki á 100km/klst hvert sem maður fer og hvar sem maður er:^)

Jæja þetta er nú bara svona en hitt er svo annað mál að jólalagið komst nú ekki alla leið en það er nú bara svoleiðis, maður getur ekki unnið allt, eða ekkert. Lagið sem vann er með hljómsveit sem heitir Fönn og er nú bara alveg ágætt, sáttur við úrslit, enda að koma jól og maður er gjafmildur fram úr hófi. Nei, nei, ekkert svona, lagið er fínt og hananú.

ofurdúfan kveður


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.12.2006 20:45:44 / illug

Jólalagið 2006

Já, það er ekkert annað en það að Gulli Helga og gleðipinnarnir eru komnir í úrslit í jólalaga keppni rásar 2. Það er nú einu sinni þannig að sveitafólkið kann líka að semja lög og sonna, ekki bara stórborgarar úr Reykjavík. Lagið samdi Magnús G. Ólafsson (gítarleikari) en systir hans er textahöfundurinn.
Þeir sem vildu vera svo góðir að kjósa þessa gleðipinna til sigurs, er bent á að kíkja á ruv.is/poppland og gefa okkur atkvæði.
Ekki að spurja að þessum Ólafsfirðingum,,,, þeir hljóta nú að styðja við bakið á einum afkastamesta lagahöfundi seinni tíma.
Það er sem sagt búið að skipa hljómsveit í kringum lagið en þeir afar skemmtilegu menn sem í henni eru, eru: Magnús Ólafsson, mógúll og gítarleikari
                               Trausti Ingólfsson hljóðsnillingur og trommari
                               Gunnlaugur Helgason male nurse og bassaleikari og gargari.

Eins og glöggir lesendur eflaust sjá, er verið að skrifa þennan pistil eins hlutlaust og hægt er.... það gengur ekki lengur.      Málið er að það er visst lag komið í úrslit,,,,, heitir jólin fagna þér,,,,,, og þið eigið að kjósa það,,, annars....,,,,,,,,,,

allar þær kommur sem í textanum eru,,,,,,, eru fyrir Ingibjörgu Ýr... hehehehe

Ofurdúfan kveður......,,,,,,,,,,

» 3 hafa sagt sína skoðun

03.11.2006 11:37:11 / illug

Jæja

    Jæja, þá er komið að'í. þetta er í fyrsta sinn sem ég er fyrstur til að skoða síðuna mína, þe. það hafa alltaf einhverjir verið á undan mér þann daginn án þess að fá nokkuð fyrir sinn snúð. Ég hef reyndar verið að býða eftir þessu nokkuð lengi þannig að nú hefst ný öld hér á þessari síðu.
Hvort ég reyni að vera málefnalegur verður bara að koma í ljós en í reynd á ég ekki gott með það þegar ég er kominn af stað, þá virðist allt fara í rugl og bull, en hverjum er ekki sama.
Þannig að:
                     GULLI OFURDÚFA ER KOMINN Á KREIK...............

» 2 hafa sagt sína skoðun

04.03.2006 14:00:49 / illug

Ekkert að gerast

Þar sem ekkert uppbyggilegt var hér inn á þessari síðu, ákvað ég að henda bara öllu út og reyna þá kannski að gera betur í framtíðinni, þ.e.a.s. uppbyggilegt.

» 3 hafa sagt sína skoðun